Velkomin á vefsíðu Dýrahjálpar Íslands!

Dýrahjálp Íslands er félag sjálfboðaliða sem leitast við að sjá dýrum sem þarfnast heimilis fyrir skjóli og stofna til þess dýraathvarf.

Frá stofnun félagsins í maí 2008 hefur Dýrahjálp Íslands aðstoðað alls dýr í heimilisleit.

Félagsgjöld 2024

18 Ágú 2024

Dýrahjálp mun senda út greiðsluseðla fyrir félagsgjöldin í ár í vikunni 26-31. ágúst 2024.

Þetta er þriðja árið sem Dýrahjálp rukkar félagsgjöld og munu allir skráðir meðlimir félagsins fá sendan greiðsluseðil í heimabankann sinn.
Starfsemi Dýrahjálpar hefur orðið mun umfangsmeiri og þyngri í rekstri síðustuár sökum fjölda dýra í vanda og heimilisleit og því var tekin ákvörðun á þarsíðasta ári að gefa félagsmönnum kleift að styrkja starfsemina með greiðslu á félagsgjöldum til að geta tekið við öllum þessum dýrum sem leitað er til okkar með og sinnt þeim með sóma.

Félagsgjöldin eru 3.800kr. í ár.
Ath. greiðslurnar eru valkvæðar en með því að greiða félagsgjöld í félagið þá ertu bæði að hjálpa okkur að halda þessu mikilvæga starfi gangandi.

Ef við hugsum upphæðina í mánuðum talið þá ertu að styrkja um 317 kr á mánuði, þó svo það hljómar ekki sem mikil upphæð þá mun það skipta sköpum fyrir þau dýr sem við munum getað aðstoðað, þökk sé þínu framlagi.

Ef þú ert ekki kominn með greiðsluseðill í heimabankann eða villt gerast félagi og fá sendann greiðsluseðil þá getur þú skráð þig hér https://www.dyrahjalp.is/gerast_medlimur/ ef linkurinn virkar ekki þá er hægt er að fara í fellilistann vinstra megin og velja "Vilt þú hjálpa?" og skrolla niður að "Gerast meðlimur" og ýta þar á "skrá meðlim". Nýskráðir munu fá greiðsluseðla senda til sín í heimabankann fyrir 31. ágúst.

Hvar birtist greiðsluseðillinn?
Við reynum eftir fremsta megni að senda valgreiðslur á alla félagsmenn. Í sumum tilfellum þá hefur það ekki gengið, og þá þurfum við að senda venjulega greiðsluseðla. Það gerist meðal annars ef fólk er „rauðmerkt“ hjá þjóðskrá þar sem það er ekki hægt að senda þannig merktum kennitölum valgreiðslur.
Þeir reikningar munu líkt og valgreiðslurnar ekki reikna dráttarvexti og verða felldir niður ef þeir eru ekki greiddir.
Við þurfum samkvæmt félagalögum okkar að senda út félagsgjöld til allra skráðra félagsmanna til að gefa þeim tækifæri á að greiða þau svo að þeir hafi atkvæðisrétt á aðalfundum. Þess vegna sendum við þessa „venjulegu“ greiðsluseðla ef það var ekki hægt að senda valgreiðslur.

Flest þau dýr sem þurfa á fósturheimili að halda eiga ekki í nein önnur úrræði eða skjól að leita og má með sanni segja að þau væru líklega ekki hér í dag ef ekki hefði verið fyrir aðkomu Dýrahjálpar og okkar sérhæfða fósturheimila kerfis.

Sýnum dýravernd í verki og styðjum við félög sem vinna í þágu dýranna í landinu.